Fékkstu bréf frá okkur?

Ef þú hefur fengið bréf frá okkur vegna ógreidds reiknings hvetjum við þig til að kanna hvaða möguleikar standa þér til boða til að greiða skuldina og þar með forðast kostnað vegna vanskila. Á Mínum síðum getur þú hvenær sem er skoðað stöðu þinna mála, greitt upp kröfur, dreift greiðslum og sótt um greiðslufrest.

Ef krafan er enn í heimabankanum þínum getur þú greitt þar eða skráð þig inn á Mínar síður og gengið frá greiðslu þar.

Skuldar þú meira en þú ræður við að greiða? Þér eru ýmsar leiðir færar og það er alltaf betra að heyra í okkur sem allra fyrst.

Á Mínum síðum getur þú sent okkur skilaboð og við skoðum málið með þeim sem er að innheimta skuldina.

Staða þinna mála á Mínum síðum

  • Á Mínum síðum sérðu yfirlit yfir þín mál sem eru í innheimtu.
  • Þú getur óskað eftir fresti, dreift greiðslum eða gert upp mál, eftir því hvar mál er í innheimtuferlinu.
  • Þú getur óskað eftir því að fá innheimtubréf send með tölvupósti í stað bréfpósts.
  • Mínar síður eru aðgengilegar öllum sem eru með rafræn skilríki.
  • Ef þú hefur spurningar varðandi mál þá er einnig hægt að senda fyrirspurn á öruggan hátt

Get ég samið um greiðslur á kröfum í innheimtu?

Ef mál er í milliinnheimtu er í flestum tilfellum heimilt að semja um að skipta greiðslum yfir 6 mánaða tímabil. Á mínum síðum geta greiðendur almennt sett upp greiðslusamkomulag til 6 mánaða. Ef vanskil eru orðin alvarlegri og mál komin í löginnheimtu þá getur þú haft samband og við förum yfir hvað er hægt að gera. Með því að skrá þig inn á Mínar síður getur þú séð hvaða möguleikar standa þér til boða fyrir hvert mál.



Mynd – Inni á Mínar síður finnur þú yfirlit yfir mál sem kunna vera í innheimtu.

1. M stendur fyrir milliinnheimtu og K fyrir kröfuvakt. Á þeim stigum er almennt hægt að setja upp greiðslusamkomulag ef kröfuahfi leyfir.
2. Veldu hnappinn Greiða eða semja.
3. Veldu Dreifa greiðslum en þá opnast gluggi þar sem hægt er að óska eftir slíku.

Ég sé fram á að greiða reikning innan örfárra daga. Er hægt að óska eftir fresti á frekari aðgerðum þar til greiðsla berst?

Ef mál eru á fyrstu stigum innheimtu, þ.e. í milliinnheimtu er almennt heimild til þess að veita allt að tveggja vikna greiðslufrest á þeim kröfum sem komnar eru í innheimtu. Á Mínum síðum er hægt að óska eftir slíkum fresti. Aðeins er möguleiki á að veita einu sinni tveggja vikna frest á málum í innheimtu.

Mínar síður, óska eftir greiðslufresti

Mynd – Inni á Mínar síður finnur þú yfirlit yfir mál sem kunna vera í innheimtu.

1. M stendur fyrir milliinnheimtu, og á því stigi er almennt hægt að óska eftir fresti.
2. Veldu hnappinn Greiða eða semja.
3. Veldu Ósk um greiðslufrest en þá opnast gluggi þar sem hægt er að óska eftir slíku.

Ef krafa er greidd beint til kröfuhafa eftir innheimta hófst, lokið þið þá kröfunni hjá ykkur?

Ef krafa berst til kröfuhafa eftir að mál er komið í innheimtu án þess að greiða dráttarvexti og innheimtukostnað, er þeirri greiðslu ráðstafað fyrst upp í kostnað og vexti og síðast upp í höfuðstól. Í slíkum tilfellum mun innheimtuaðgerðir halda áfram þar til eftirstöðvar fást greiddar.

Samkomulagið sem ég hafði gert var gjaldfellt af hverju?

Ef ekki er staðið við greiðslur samkvæmt samkomulagi er það allt fellt í gjalddaga. Það getur líka verið fellt ef greiðandi stendur ekki við greiðslur á áfallandi kröfum frá sama kröfuhafa, ef það koma nýjar kröfur til innheimtu þá eru samkomulög gjaldfelld. Ef slíkt gerist þarf að greiða samkomulag og / eða greiða áfallandi kröfur í skil. Þegar greiðslur til að koma samkomulagi aftur í skil hafa borist er hægt að óska eftir að endurnýja samkomulagið.

Ef búið er að skrá kröfuna á vanskilaskrá Creditinfo og ég geri samkomulag um greiðslur er málið þá afskráð af vanskilaskrá?

Nei, krafan er inn á skrá hjá Creditinfo þar til hún er að fullu greidd en þá er hún afskráð daginn eftir greiðslu. Þú getur fylgst með stöðu þinna mála á vanskilaskrá Creditinfo inni á mitt.creditinfo.is.

Ég er að greiða fyrir annan aðila, hvernig kemst það best til skila?

Setja tilvísunarnúmer í skýringu og senda kvittun með tölvupósti á motus@motus.is með kennitölu þess sem verið er að greiða fyrir.

Gjaldskrá frum- og milliinnheimtu

Gjaldskrá Lögheimtunnar vegna löginnheimtu (pdf)

Allar fréttir              

Þegar krafa fellur í vanskil eru allar líkur á að kröfuhafinn reyni að innheimta kröfuna í þeim tilgangi að fá hana greidda. Segja má að hefðbundin innheimtustig séu tvö; frum- og milliinnheimta á fyrri stigum og löginnheimta á síðari stigum.

Hafa samband

Þjónustufulltrúar Motus geta veitt ráðgjöf og aðstoðað við gerð greiðslusamkomulags.